Privacy policy

PERSÓNUVERNDARYFIRLÝSING BRAINPOPS EHF.

Almennt
Þegar þú heimsækir vefinn Chadgrooming.is þá verða til upplýsingar um heimsókn þína. Chad virðir friðhelgi persónuupplýsinga og því miðlum við þeim upplýsingum sem safnast, ekki til ótengdra aðila. Með því að heimsækja vefinn lýsir þú þig samþykkan skilmálum okkar um persónuvernd og öryggi.
Eigandi chadgrooming.is er Brainpops ehf.

 

  1. Um hverja safnar Chad Grooming persónuupplýsingum?
    Í starfsemi Chad Grooming er nauðsynlegt að safna og vinna með persónuupplýsingar um mismunandi hópa einstaklinga. Þær persónuupplýsingar sem fyrirtækið hefur undir höndum geta verið um starfsmenn þess, viðsemjendur, viðskiptavini, þá sem skrá sig á póstlista og aðra þriðju aðila sem nauðsynlegt er að eiga samskipti við.
  2. Hvaða persónuupplýsingum safnar Chad Grooming um þig?
    Chad Grooming safnar ólíkum persónuupplýsingum um mismunandi hópa einstaklinga eftir því hvaða starfsemi fyrirtækisins er um að ræða. Undir öllum kringumstæðum leitast Chad Grooming við að safna einungis þeim persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru með hliðsjón af tilgangi vinnslunnar.
    Chad Grooming safnar nauðsynlegum upplýsingum um starfsfólk, svo sem upplýsingum um nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer, samskipti, viðveru, laun og fleira. Einnig þarf fyrirtækið að halda til haga nauðsynlegum tengiliðaupplýsingum, svo sem nafni og netfangi, um starfsmenn viðskiptavina og aðra þriðju aðila. Að auki safnar Chad Grooming nauðsynlegum upplýsingum um viðskiptavini þegar við á, til dæmis nafni, kennitölu, netfangi, símanúmeri, heimilisfangi og upplýsingum um efni pöntunar. Þá safnar Chad Grooming upplýsingum um netföng þeirra sem skrá sig á póstlista. Að auki safnar Chad Grooming myndefni úr eftirlitsmyndavélum þar sem finna má persónuupplýsingar.
  3. Af hverju safnar Chad Grooming persónuupplýsingum um þig?
    Tilgangurinn með söfnun upplýsinganna er að:
    • Geta efnt samningsskyldu, til dæmis við starfsmenn og viðskiptavini.
    • Gæta að lögmætum hagsmunum fyrirtækisins, svo sem með rafrænu eftirliti
    • Gæta að lögmætum hagsmunum annarra.
    • Uppfylla lagaskyldu.
    • Kynna ýmislegt sem tengist starfsemi fyrirtækisins, þ.e. þeim aðilum sem skrá sig á póstlista.
  4. Á hvaða lagagrundvelli vinnur Chad Grooming persónuupplýsingar um þig?
    Chad Grooming safnar og vinnur persónuupplýsingar á eftirfarandi lagagrundvelli:
    • Samþykki þínu.
    • Til að uppfylla samningsskyldu.
    • Til að uppfylla lagaskyldu.
    • Til að gæta að lögmætum hagsmunum fyrirtækisins.
    • Til að gæta að lögmætum hagsmunum annarra.
  5. Hve lengi geymir Chad Grooming persónuupplýsingar um þig?
    Chad Grooming geymir persónuupplýsingar einungis í þann tíma sem nauðsynlegt er fyrir fyrirtækið að hafa þær undir höndum. Þegar ekki er þörf fyrir að hafa persónuupplýsingar undir höndum lengur eyðir fyrirtækið þeim með öruggum hætti.
  6. Frá hverjum safnar Chad Grooming upplýsingum um þig?
    Chad Grooming safnar persónuupplýsingum frá þér beint. Ef safnað er persónuupplýsingum frá þriðja aðila mun Chad Grooming eftir fremsta megni leitast við að upplýsa viðkomandi einstakling um það.
  7. Hvenær miðlar Chad Grooming þínum persónuupplýsingum til þriðju aðila og af hverju?
    Chad Grooming miðlar persónuupplýsingum til þriðju aðila sem ráðnir eru af fyrirtækinu til að vinna fyrir fram ákveðna vinnu, svo sem þjónustuveitenda, umboðsmanna eða verktaka. Í þeim tilfellum gerir fyrirtækið vinnslusamning við viðkomandi aðila. Slíkur samningur kveður meðal annars á um skyldu hans til að fylgja fyrirmælum Chad Grooming um meðferð og vinnslu persónuupplýsinga og er honum óheimilt að nota þær í öðrum tilgangi. Jafnframt ber honum skylda til að tryggja öryggi upplýsinganna með viðeigandi hætti.
  8. Flutningur persónuupplýsinga út fyrir Evrópska efnahagssvæðið
    Chad Grooming er kunnugt um að ströng skilyrði gilda um flutning persónuupplýsinga til ríkja sem staðsett eru utan Evrópska efnahagssvæðisins. Fyrirtækið gerir það ekki undir neinum kringumstæðum nema follnægjandi heimild standi til þess samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.
  9. Réttindi þín
    Hafir þú veitt samþykki þitt fyrir vinnslu tiltekinna persónuupplýsinga átt þú rétt samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónupplýsinga nr. 90/2018 að afturkalla samþykki þitt hvenær sem er. Sá réttur hefur þó ekki áhrif á lögmæti þeirrar vinnslu sem fram fór áður en samþykki var afturkallað. Þá nýtur þú einnig annarra réttinda, svo sem réttar til aðgangs að þínum gögnum, réttar til að fá rangar eða villandi upplýsingar leiðréttar, réttar til að persónuupplýsingum um þig verði eytt, réttar til að hindra að unnið verði með persónuupplýsingar um þig og réttar til að flytja eigin gögn. Hafa skal í huga að réttindi þín eru ekki alltaf fortakslaus og kunna að vera háð ýmsum skilyrðum.
  10. Öryggi persónuupplýsinga
    Chad Grooming hefur gripið til viðeigandi tæknilegra og skipolegra öryggisráðstafana til að tryggja öryggi persónuupplýsinga í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Felur það meðal annars í sér að aðeins þeir starfsmenn hafa aðgang að persónuupplýsingum sem þess þurfa starfs síns vegna. Auk þess stuðlar fyrirtækið að því að starfsmenn fái reglolega viðeigandi fræðslu og þjálfun um öryggismál.
  11. Samskiptaupplýsingar Chad Grooming
    Nafn: Brainpops ehf.
    Netfang: chad@chadgrooming.is

Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd
Dragir þú í efa að Chad Grooming meðhöndli persónuupplýsingar þínar í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 hefur þú rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd (www.personuvernd.is).

We value your privacy and the information you consent to share in relation to our SMS marketing service. We use this information to send you text notifications (for your order, including abandoned checkout reminders), text marketing offers, and transactional texts, including requests for reviews from us.

Our website uses cookies to keep track of items you put into your shopping cart, including when you have abandoned your checkout. This information is used to determine when to send cart reminder messages via SMS.