Terms of service

Almennir skilmálar

Almennt:

Neytendur eru hvattir til þess að lesa skilmála þessa vandlega áður en þeir versla í vefverslun Chad Grooming, www.chadgrooming.is

Um notkun vefsíðu og vefverslunar Chad Grooming gilda skilmálar þessir. Með því að nota vefsíðu og vefverslun Chad Grooming, skilið og samþykkt, án fyrirvara, skilmála þessa, eins og þeir eru á hverjum tíma.

Eigandi Chad Grooming.is er Chad Grooming ehf.


Verð:

Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur. Chad Grooming áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunar er að ræða.

Nákvæmni upplýsinga:

Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.


Greiðslur:

Greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslugátt

Skattar og gjöld:

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Nákvæmni upplýsinga:

Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.

 

Áskriftarskilmálar

Chad Grooming ehf. (5305251040) og kaupandi gera með sér svohljóðandi samning.

Tilgangur samkomulagsins er að Chad Grooming selji kaupanda áskrift að mánaðarlegri sendingu

Samningur þessi tekur gildi við stofnun notanda

Samningur þessi er uppsegjanlegur með 3 mánaðar fyrirvara.

Uppsögnin skal miðast við mánaðarmót.

Kaupandi skal greiða mánaðargjald fram að þeim tíma þegar samningur fellur úr gildi.

Vilji kaupandi segja upp samningnum ber honum að gera það með því að hafa samband með tölvupósti á chad@chadgrooming.is

Afhending

Sendingar fara út mánaðarlega og eru annað hvort sendar með Póstinum eða Dropp.

Vöruskil og endurgreiðslur

Kaupandi hefur 14 daga skilafrest, að því gefnu að varan sé í upprunalegu ástandi.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Sendingar úr kerfi verslunar kunna að nota persónuupplýsingar, s.s. búsetu, aldur eða viðskiptasögu, til að útbúa viðeigandi skilaboð til meðlima síðunnar. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Meðlimir vefverslunnarinnar geta ætíð afskráð sig og þannig neitað fyrirtækinu notkun á slíkum upplýsingum.

Varnarþing

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur "Chad Grooming" á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.

Ábyrgð

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir sé þess krafist. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar.