Af hverju Obsidian Safety Razor? Minni inngróin hár, minni húðerting og meiri sparnaður
Share
Það eru nokkrar ástæður fyrir því að margir karlmenn velja Obsidian Safety Razor yfir hefðbundnu cartridge rakvélarnar sem eru á markaðnum í dag 🪒
Ástæðurnar eru:
- Minni líkur á inngrónum hárum
- Minni húðerting
- Minni líkur á bólum (razor bumps)
- Meiri sparnaður til lengri tíma
- Nákvæmari skegglína
Förum aðeins betur yfir þetta!
Vandinn: Of mörg blöð í einu 🪒
Cartridge rakvélar — eru með 3 til 6 blöð í sköfunni. Þannig það eru 3 - 6 blöð að fara í gegnum hvert einasta hár þegar þú rakar þig.
Þetta þýðir meiri erting og hárið er skorið undir húðlínunni. Hárið vex síðan aftur og er fast undir húðinni.
Þetta eru razor bumps og inngróin hár.
Lausnin: Eitt blað 💪
Obsidian Safety Razor hefur eitt blað. Eitt!
Það er aðeins eitt blað sem fer í gegnum hvert hár, ekki fjögur, ekki sex.
Þetta kemur í veg fyrir:
- Húðertingu
- Inngróin hár
- Razor bumps
Sparnaður til lengri tíma 💸
Þó svo að Obsidian Safety Razor rakvélin sé almennt dýrari en Cartridge rakvélar þá eru blöðin mikið ódýrari í Obsidian Safety Razor og til lengri tíma getur þú sparað mikinn pening.
Hér er smá samanburður:
| Blað | Verð | Kostnaður á blað |
|---|---|---|
| Cartridge rakvélablöð meðaltal (4 stk) | 3.040 kr | ~608 kr/blað |
| Safety Razor rakvélablöð (10 stk) | 1.395 kr | ~140 kr/blað |
Þú ert að borga að meðaltali 4,34x meira á hvert blað - og að fá verri útkomu á húðina.
Ef þú notar 1 rakvélablað í viku þá ertu að greiða 31.616kr á ári ef þú notað cartridge rakvél en bara 7.280kr á ári ef þú notar Safety Razor rakvél sem þýðir að þú ert að spara 24.336kr á ári.
Ef þú rakar þig oft (daglega) og notar 3 rakvélablöð í viku þá ertu að greiða 94.848kr á ári ef þú notað cartridge rakvél en bara 21.840kr á ári ef þú notar Safety Razor rakvél sem þýðir að þú ert að spara 73.008kr á ári!
Versla Safety Razor blöð í Krónunni 👉 Safety Razor Rakvélablöð – 10 stk
Skegg? Safety Razor er ennþá málið. ✂️
Ef þú ert með skegg en rakar hálsinn eða skegglínu á kinn, þá gefur Obsidian Safety Razor þér nákvæma skegglínu.
Þar sem cartridge rakvél er með nokkur blöð í sköfunni getur verið erfitt að staðsetja rakvélina. Þú endar með óljósa skegglínu sem lítur ekkert sérstaklega vel út.
Obsidian Safety Razor gefur þér nákvæma skegglínu þar sem þú stjórnar betur hvert rakvélablaðið fer.
⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️
"Takk fyrir frábærar vörur, hef aldrei upplifað annan eins rakstur og með Obsidian safety-razor, gefur ekkert eftir, togar ekkert og virkilega mjúkur rakstur sem hentar vel fyrir viðkvæma húð."
- Heimir Þór
